Almennt um Fab Lab
Stutt lýsing
Fab Lab (Fabrication Laboratory) er rými þar sem fólk getur hannað og búið til eigin hugmyndir með stafrænum tækjum og verkfærum. Á Íslandi eru yfir 10 Fab Lab smiðjur sem vinna saman að því að efla sköpun, nýsköpun og tæknimenntun. Fab Lab netið á Íslandi er öflugt samfélag sem styður við einstaklinga, skóla, fyrirtæki og samfélög í að skapa og þróa.
Lengri lýsing
Fab Lab (eða Fabrication Laboratory) er staður sem fólk á öllum aldri getur lært, búið til og deilt hugmyndum sínum með öðrum og búið til nánast hvað sem er. Í Fab Lab er lögð áhersla á skapandi lausnir, gagnvirka menntun og sameiginlega þekkingarsköpun. Þar kemur fólk saman til að prófa sig áfram, leysa vandamál, finna lausnir og umbreyta hugmyndum í verkefni.
Á Íslandi hefur Fab Lab hugsjónin dafnað og myndað sterkt net smiðja um allt land, meðal annars í Reykjavík, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Sauðárkróki, Neskaupstað og fleiri stöðum. Samstarfið innan Fab Lab netins gerir það einstakt á heimsvísu og styður við nýsköpun, STEM greinar, tækniþróun og samfélagslega þátttöku.
Fab Lab smiðjurnar taka virkan þátt í menntun, nýsköpunarverkefnum og samfélagsuppbyggingu. Þær vinna saman að fjölbreyttum viðburðum, þar á meðal árlega Bootcampinu, þar sem starfsfólk Fab Lab á Íslandi hittist til að efla tengsl, miðla reynslu og þróa nýjar hugmyndir í sameiningu.