ATtiny 412 Programmer Breakout Board
Þetta er lítið sniðugt bretti sem er hægt að nota til þess að forrita ATtiny 412 áður en hann er lóðaður á bretti.
Það er mjög sniðugt því þá þarf ekki að lóða sérstaklega forritunar-pinna á brettið sem ATtiny kubburinn á að vera á.
ATtiny412 Breakout bretti
ATtiny412 Breakout Bretti
Brettið er ofur einfalt. Það er einn 1uF capacitor, fótspor fyrir ATtiny412 og þrír pinnar.
ATtiny412 Breakout Bretti íhlutir
Serial-UPDI 3-pin millistykki
Serial-UPDI 3-pin millistykki
Serial-UPDI 3-pin millistykki
Hér er hægt að sækja skrárnar sem þarf til að fræsa út millistykkið
Forrita ATtiny412
Til þess að forrita ATtiny412 þá þarf að halda kubbnum þétt upp að fótsporunum, (VCC og GND næst þéttinum), svo eru pinnunum þremur tengt í Serial-UPDI 3-pin millistykkið og millistykkið tengt til FTDI-USB snúru. Svo er ATtiny412 kubburinn forritaður í gegnum Arduino IDE.
ATtiny412 forritaður með breakout brettinu, Serial-UPDI millistykki og FTDI-USB snúru
UPDATE !!!
Millistykki innifalið
Í þessari útgáfu er millistykkið innifalið í brettinu svo það þarf bara að tengja þetta bretti beint í FTDI snúruna.
ATtiny412 breakout brettið með serial pinnum
ATtiny412 breakout brettið með serial pinnum sem hægt er að tengja beint í FTDI snúru