Prusa XL viðgerð
Við útprentun á bæjarlíkani kom í ljós að Prusa XL prentarinn var ekki að prenta út eins og skyldi. Það var því farið í að laga hann sem varð þónokkuð stærra verkefni heldur en upprunalega var búist við.
Upprunalegt vandamál
Í miðri útprentun byrjaði stútur 5 að grafa ofan í prentið. Þetta gerðist stuttu eftir skipti fá stút 3 yfir í stút 5. Þegar tekið var eftir þessu var prentið stoppað og reynt að stilla Z offset á stútunum, en við það kom síendurtekið upp "XY probe unstable" villa og prentarinn endurræsti sig sjálfan.
Viðgerðir
Upprunalega var reynt að taka prentarann úr sambandi, setja hann aftur í samband og reynt aftur, en án árángurs. Þá voru reyndar nokkrar leiðir til að stilla Z offset, eins og t.d. að festa Z offset calibration pin meira eða minna, sleppa plast stykkinu sem festist á pinnan og meira í þeim dúr, en ekkert gekk upp.
Var þá reynt að stilla loadcells, hreinsa alla stúta MJÖG vel, uppfæra prentarann, taka út allt filament sem var tengt við hann og að lokum var farið í gegnum öll calibrations sem að prentarinn bauð upp á. Að lokum þá komst prentarinn loksins í gang, þó það er ekki alveg vitað hvað af upptöldu skrefum gerði útslagið.
Viðgerðin tók þónokkurn tíma og í heildina fóru u.þ.b. 5 klst í hana, þar sem tveir voru að meirihlutann af tímanum.